Einstaklingar

Bókhaldsþjónusta fyrir einstaklingar og sjálfstætt starfandi

Ertu með rekstur á eigin kennitölu eða þarftu aðstoð við flóknari skattskil? Margir telja að aðeins stór fyrirtæki þurfi bókhaldara, en raunin er sú að einstaklingar þurfa líka bókhaldsþjónustu til að tryggja að allt sé gert samkvæmt lögum og reglum.

Hjá Grimmu bjóðum við upp á persónulega og faglega ráðgjöf sem léttir á áhyggjum og sparar þér dýrmætan tíma.

Af hverju þurfa einstaklingar bókhald?

Bókhald snýst ekki bara um tölur; það snýst um að hafa hlutina í lagi gagnvart Skattinum og tryggja að þú nýtir þá afslætti og frádráttarliði sem þú átt rétt á.

Við aðstoðum einstaklinga með

  • Virðisaukaskattskil

    Uppgjör og skil á réttum tíma.

  • Skattaskýrslur

    Fagleg aðstoð við gerð skattskýrslu fyrir einstaklinga í atvinnurekstri.

  • Launavinnslu

    Ef þú ert með starfsfólk eða ert að greiða þér reiknað endurgjald.

  • Stofun lögaðila

    Ráðgjöf um hvort þú eigir að starfa á eigin kennitölu eða stofna einkahlutafélag (ehf).

  • Almennt bókhald

    Skipulag á reikningum og fylgiskjölum svo þú hafir yfirsýn.

Persónuleg þjónusta

Við vitum að bókhald getur virkað flókið. Markmið okkar er að einfalda lífið fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga svo þeir geti einbeitt sér að því sem þeir gera best. Hvort sem þú ert hönnuður, iðnaðarmaður eða ráðgjafi, þá er bókhaldsþjónusta Grimmu sniðin að þínum þörfum.

Hvað kostar bókhaldsþjónusta fyrir einstaklinga?

Kostnaður við bókhaldsþjónustu fyrir einstaklinga og sjálfstætt starfandi er breytilegur og fer fyrst og fremst eftir umfangi rekstursins og fjölda fylgiskjala. Flestir verktakar og einyrkjar geta vænst þess að greiða hagstætt fast mánaðargjald eða einingaverð sem miðast við raunverulega vinnu, hvort sem um er að ræða einfalt uppgjör eða flóknari skattaráðgjöf. Með því að nýta stafrænar lausnir lágmörkum við handavinnu og tryggjum að þú fáir faglega þjónustu á samkeppnishæfu verði, þar sem fjárfestingin skilar sér fljótt í betri nýtingu frádráttarheimilda og öruggum skattskilum.

Sjá verðskrá fyrir tímavinnu og fyrir flóknari verkefni gerum við tilboð eftir umfangi.

Alhliða bókhaldsþjónusta á sanngjörnu verði

Launavinnsla, skilagreinar, skattskýrslur, ársreikningar, virðisaukaskattur.

Skoða verðskrá
Scroll to Top