Skattaskýrslur

Fyrir einstaklinga, hjón og fyrirtæki sem eru í viðskiptum hjá okkur sjáum við um skattframtal og allar skattaskýrslur. 

Ef á þarf að halda sækjum við um framtalsfrest og sjáum um kærur ef þess er óskað.

Skattframtöl

Öllum einstaklingum og rekstraraðilum er skilt að telja fram til skatts. Skattframtal og skattskil eru til grundvallar álagningu opinberra gjalda s.s. útsvars og útvarpsgjalds.

Það er betra að vera með allt sitt á þurru þegar kemur að skattinum.

Skattskil - dagsetningar og frestir

  • Mars

    Almennur frestur til að skila skattframtali einstaklinga.

  • Maí / Júní

    Frestir fyrir rekstraraðila og félög.

  • Ágúst

    Álagningarseðlar birtast í stafræna pósthólfinu.

Launþegi eða verktaki: Hver er munurinn á skattskilum?

Þegar kemur að skattskilum er grundvallarmunur á því hvort þú starfar sem hefðbundinn launþegi eða sem sjálfstætt starfandi verktaki. Skatturinn horfir ólíkt á þessa tvo hópa og réttindin, skyldurnar og frádráttarheimildirnar eru gjörólíkar. Fyrir þá sem starfa í eigin rekstri (oft sjálfstætt starfandi einstaklingar) er framtalsgerðin mun umfangsmeiri en hjá þeim sem fá launaseðil um hver mánaðamót.

Launþeginn: Einfaldleikinn í fyrirrúmi

Fyrir flesta launþega er skattframtalið að miklu leyti fyrirframútfyllt. Atvinnurekandinn skilar inn upplýsingum um laun, staðgreiðslu og lífeyrisgreiðslur jafnóðum yfir árið.

  • Skattskil: Launþegar þurfa aðallega að fara yfir hvort tölurnar séu réttar, skrá eignir (eins og fasteignir eða bíla) og skuldir (lán).

  • Frádráttur: Launþegar hafa mjög takmarkaða möguleika á að draga kostnað frá tekjum sínum. Almenna reglan er sú að kostnaður við að afla teknanna er ekki frádráttarbær á móti launatekjum.

Verktakinn: Sjálfstætt starfandi einstaklingur

Hjá sjálfstætt starfandi einstaklingum hvílir öll ábyrgðin á herðum einstaklingsins. Þú ert í raun þinn eigin „launadeild“.

  • Rekstraryfirlit (RSK 4.11): Verktakar þurfa að skila sérstöku rekstraryfirliti með skattframtalinu. Þar eru allar tekjur ársins teknar saman og kostnaður dreginn frá.
  • Frádráttarbær kostnaður: Þetta er stærsti kosturinn og um leið flóknasti hlutinn við verktakastarfsemi. Þú mátt draga nánast allan eðlilegan rekstrarkostnað frá tekjum áður en skattur er reiknaður. Þetta getur verið:

Hvaða gögnum á ég að skila?

Ef þú ert verktaki eða með rekstur á þinni kennitölu, mælum við með að þú safnir saman eftirfarandi gögnum áður en við hefjumst handa:

  • Sölureikningar: Allir útgefnir reikningar á árinu.
  • Kostnaðarkvittanir: Allt sem þú keyptir fyrir reksturinn.
  • Akstursdagbók: Ef þú notar bílinn í vinnunni.

Hvernig skila ég gögnunum?

Við viljum gera þetta eins auðvelt og hægt er. Þú getur valið þá leið sem hentar þér best:

  • Stafrænt (Mælt með): Sendu okkur gögnin á bokhald@grimma.is eða settu þau í sameiginlega möppu (Dropbox/Google Drive) sem við setjum upp fyrir þig.
  • Beinn aðgangur: Gefðu okkur aðgang að þínu sölukerfi, þá sækjum við söluna sjálf.
  • Gamla leiðin: Ef þú vilt frekar skila pappírum í umslagi, þá finnum við út úr því!

Verðskrá fyrir skattaskýrslur

Skoðaðu verðskrá fyrir skattaskýrslur 

Alhliða bókhaldsþjónusta á sanngjörnu verði

Launavinnsla, skilagreinar, skattskýrslur, ársreikningar, virðisaukaskattur.

Skoða verðskrá
Scroll to Top